10.01.2008 14:37:48 / agustleo
Jæja ég var að vinna í auglisyningu í gær sem að var bara helvíti gaman. Hún var tekin upp í heima húsi hérna í reykjavík. Ég set inn myndir sem ég tók í gær. Það var pegasus sem að gerði hana fyrir Létt & Loggott

Hérna eru Eiki og Elli tökumaður að undrbúa töku.

Elli tökumaður og Gunni Astrópía að ræða málin. Gunni leikstýrði auglisyninguni.
Hérna er tökuvélin.

Ási ljósamaður og Eiki í pásu.


Elli í miðri töku.
»
17.12.2007 00:39:38 / agustleo
Jæja þá er maður búinn með kvikmyndaskolan. Þetta er búið að vera fínt, búinn að læra alveg heilan helling. Við fimm félagarnir sem vorum að útskrifast í gær erum búnir að ganga í gegnum margt á þessum tvem árum. Búnir að lenda undir í skólakerfinu vorum vandræða önnin, byrjuðum 13 á fyrstu önn og það hættu sjö eftir hana og skólinn var allur í rugli allir kennarar hættu og eitthvað kjaftæði. Á annari önn vorum við sex, fimm drengir og ein stelpa, þessi önn var ekki alveg að virka því að stelpan í hópnum var allveg að eyðileggja allt. Eftir þá önn hætti hún og fór út til London eða eitthvað. Þá á þriðju önn vorum við bara fimm eftir og það voru nú ekki margir sem héldu að við fimm myndum klára skólan en við komum öllum á óvart. En nóg um það. Sýningin í gær gékk mjög vel myndin mín vann verðlaun fyrir bestu hljóðvinnslu, myndin Tregasteinn eftir Hjalta vann fyrir bestu myndvinnslu og svo var það 7 skilaboð eftir Pétur sem vann fyrir bestu mynd. Strákar til hamingju.

Hérna er útskriftarskirtinið

Viðurkenningin
Og stákar Pétur, Hjalti, Þór og Sindri til hamingju með útskriftina það er búið að vera frábært að vera með ykkur í skólanum. Takk fyrir allt...............
»
13.12.2007 22:55:28 / agustleo
Búinn með myndina mína... Þetta var frábært verkefni allir leikara stóðu sig frábærlega, eiga mikið hrós skilið. Í dag fóru dómaranir yfir myndina og velja bestu lokamyndina sem verður tilkynnt á laugardagin. Myndin verður svo sýnd í bíó á laugardaginn. Og hvet ég alla þá sem vilja sjá þetta meistara verka að mæta í Bæjarbíó Hafnarfirði kl: 13:00. Þar útskrifumst við vandræða önnin sem kvimyndagerðarmenn hehe.....

»
13.12.2007 22:39:56 / agustleo
Jæja nú fer að styttast í að maður útskrifast sem kvikmyndagerðarmaður.. Ég er að vinna að loka verkefni mínu sem heitir FellaX og er 16. mín stuttmynd. Myndin mín er svartur húmor og skrifaði ég sjálfur handritið með hjálp frá Láru Marteinsdóttir. Ég er búinn að taka hana upp og er að leggja lokahönd á myndina..

ég, Sindri og Pétur í tökum


Hérna er ég að undirbúa líkið fyrir tökur veiii

Hérna er þór og Pétur að ræða málin í mat

Svenni aðaleikarinn í myndini..

Leikstjórinn að bíða eftir matnum... Og Addó

Svo að lokum mynd af Lögguni.. hehe
»
25.06.2007 18:06:47 / agustleo
Ég ætla að setja inn nokkrar myndir úr vinnuni og skólanum bara
svona til gamans....

Ég við klippiborð.



upptökur á stundini okkar...veiiii

»
30.08.2006 23:20:13 / agustleo
Já hér er
slóð á myndbandið eftir okkur sem við gerðum í skólanum í vor.
Þetta myndband var skuggalega erfit að gera vegna þess að
myndbandið var tekið á ljósmyndavél. Við tókum um 700 ljósmyndir
og klipptum saman. Lagið heitir Ammanie og er eftir
tónlistarmannin Ruxpin eða Jónas Þór Guðmundsson og lék hann í
myndbandinu... Endilega segið hvað ykkur finnst
http://youtube.com/watch?v=5VQm0lwG28w
»
06.08.2006 21:36:49 / agustleo
Hérna er mynd af bílnum hjá múttu en hún lennti í óhappi í dag
þegar það var keyrt í hliðna á henni og bíllin valt!!! En gamla
konan slapp nokkuð vel ekkert brot eða neitt... Eins og ég segi þá
er hún mútta OFUR KONA hehe
»
01.07.2006 21:10:55 / agustleo
Já núna er gamanið byrjað aftur kominn í himnaríki a.k.a
Kárahnjúkar. Það er bara fínt svoldið fámennt því að það eru svo
margir á landsmóti hestamanna. þar sem ég vildi gjarnan vera á. eða
kannski ekki ég á ekki góðar minningar frá síðasta landsmóti þar
sem ég brilleraði á tjaldstæðinu... hljóp um allt nxxxx.... uzzzz
ekki gaman. þetta frí sem ég var í síðast var ágætt slappaði bara
voðavel á gerði ekki rassgat nema fór að versla dvd myndir með addó
og ekki er neinu sparað þegar við förum saman í svona ferðir.... en
allavegana bless í bili.......................
P.s endilega kíkið á þessa síðu
www.yoursexappeal.com/test.php?test=773192
»
15.06.2006 09:45:30 / agustleo
»
13.06.2006 18:17:58 / agustleo
jæja nú er ég kominn aftur uppa kárahnjúka og er ap fara á
næturvaktir! Fyrsta vaktin á eftir að vera mjög erfið þar sem ég er
enþá að ná mér eftir gubbupest sem ég var með í gær og alla
nótt..... en allavegana bless í bili....... en ég ætla að setja inn
myndir af svæðinu á morgun.....
»
26.05.2006 20:26:28 / agustleo
Núna er ég kominn aftur upp á hnjúka... dagurinn byrjaði ekki vel,
þegar ég kom uppá flugvöll og búinn að koma mér inní vélina þá
kallaði flugstjórinn að flugvélin væri biluð og við þurftum að
skipta um vél.. þannig að allir í flugvélini þurftu að fara í
flugstöðina og doka eftir við biðum í 40 mín eftir næstu vél... svo
þegar við komum uppá hnjúka fékk ég að fara á bílinn sem ég verð á
í sumar sem er CAT 773 trukkur sem er stór og mikill bíll 100 tonn
fulllestaður þannig að passið ykkur að vera ekki fyrir.....
hehehe
»
22.05.2006 15:42:52 / agustleo
Jæja búinn að fá úr prófunum og gékk bara geðveikt vel hef aldrei
æaður gengið eins vel í skólan eins og nú kannski útaf því að ég
hef aldrei verið með eins mikinn áhuga og nú....
Ég er byrjaður uppá kárahnjúkum að vinna það hefur allt breyts þar
frá því í fyrra stíflan miklu stærri og ALLT..... Annas er ekkert
að frétta...
»
06.05.2006 22:02:01 / agustleo
Jæja nú er komið að því að fara vinna..... Sýningin á lokamyndini
minni var í gær og ég verð að segja að ég var nokkuð stressaður
fyrir sýninguna

en það heppnaðist bara allt vel. Svo er bara að
bíða eftir að fá að vita hvað dómnefndin segir um myndina mína en í
dómnefndini voru engir aðrir en Dagur Kári sá sem gerði Nóa Albinóa
svo var það Elísabet Rónaldsdóttir sem er besti klippari íslands og
að lokum var það Ottó Borg sem er handrits spekingur með meiru...
En ég fæ að vita hvað þeim fannst um myndina á miðvikudagin en þá
verð ég komin uppá kárahnjúka að vinna.. ég er mjög spenntur
að sjá sérstaklega hvað Dagur Kári sagði um myndina mína...
En allavegana blogga meira næst...
»
26.04.2006 14:56:19 / agustleo
Þá er skólinn byrjaður aftur eftir langa pásu (taka upp
lokaverkefnið). Og er byrjaður að klippa stórmyndina mína sem kemur
bara ágætlega út. Og það er meira en að segja það að klippa myndina
því að hún má bara vera 5 mín og þar sem maður tók upp alveg fullt
af efni. En skólinn er bara alveg að verða búinn bara 9 dagar eftir
og 9 dagar í frumsýningu á myndini minn (pínu stress).........
Over and out. Leó........
»
22.04.2006 11:27:45 / agustleo
já eg þarf að fara í skólan aftur á morgun eftir 3 vikna frí... sem
var samt ekki frí heldur var ég að vinna lokaverkefnið mitt og
hjálpa hópnum mínum við sín verkefni. og á morgun eigum við að fara
byrja að klippa verkefnin okkar.... og já við erum búinn að fa svar
við íbúðini sem við buðum í og það var samþykkt þannig að nú er
bara lána draslið eftir veiiiiii....
Leó er orðin þreyttur svo ég blogga bara meira næst...
Over and out. Leó......
»
Síður:
1 2